NÓVEMBER 2009
AÐVENTAN 2009
JÓL&ÁRAMÓT 2009

Comments Ein athugasemd »


Comments Ein athugasemd »


Comments Engar athugasemdir »

Þá er besti tími ársins genginn í garð og kertin og kósíheitin komin á fullt!!!

Stanslaust stuð hér á Brautinni og ekki laust við að maður sé aðeins farin að huga að því hvað er stutt í jólaundirbúning (sem byrjar alltaf MJÖG snemma hér á bæ) !!!

Mér finnst voðalega gott að vera komin aftur heim eftir stórkostlega Finnlands- EM-ferð með landsliðinu og er ennþá að rifna úr stolti af stelpunum, þær eru þvílíkir töffarar!!!
KSÍ er líka algjörlega frábært og á endalaust hrós skilið fyrir að dekra við stelpurnar og okkur sem vorum að vinna í kringum liðið alla daga allan daginn!!!

Stefnan er að eyða næstu vikum og mánuðum í að hitta alla skemmtilegu vini okkar sem er alltof langt síðan við höfum hitt og hefst þá fljótlega matarboða-season hér á Brautinni :o)

Ég ætla líka að reyna að vera dugleg að setja inn myndir og fréttir af strákunum fyrir hana Hildi okkar sem er flutt til Kanada og við söknum svo mikið!!

Á myndasíðunni eru tvö ný albúm; Afmæli Breka og Óttars 2009 og Ágúst 2009

Verði ykkur að góðu :o)

Comments 2 athugasemdir »

Já dugnaður hér á bæ :o)
Júní 2009
Júlí 2009
Verslunarmannahelgin 2009

Sumarfrí búið og á morgun tekur alvara lífsins við.

Breki hættur með bleyju.
Óttar vildi óska þess að hann gæti gengið.
Pabbinn og mamman úthvíld eftir gott sumarfrí.

Tvöfalt afmæli á næsta leiti.

Finnland framundan :o)

Comments Ein athugasemd »

Komnar inn myndir frá maí í albúmið og einn tönn í Óttarinn :o)

Comments 3 athugasemdir »

KREPPAN KREPPAN KREPPAN

Hmmm vorkenndi einhver manninum í Íslandi í dag í gærkvöldi???
….Sem sat í nýja fancy eldhúsinu sem ég myndi ekki hafa efni á þó ég seldi af mér báða fæturnar, með afskornu blómin í skreytingar um öll borð, BTW afskorin blóm eru dýrari en allur skrattinn, og fjölskyldu myndina frá nýlegu sólarlandafríi í bakgrunninn…
…. sagðist vera að flýja land af því að allir eru svo ömurlegir og óréttlátir við þessa litlu sætu fjölskyldu sem að fullfrísk með tvær fyrirvinnur gat ekki staðið í skilum með 3 millur árið 2006 (já þið heyrðuð rétt það ágæta gullkálfsár 2006)
……. Sorry en það er akkúrat svona fólk sem fer massívt í taugarnar á mér þessa dagana, það kæmi mér bara alls ekki á óvart að ef kamerukarlinn hefði kíkkað út á bílastæði hjá þessu fólki sem á svona bágt að þar hefði staðið Range Rover…. nei ég er kannski dómhörð en á einhverjum tímapunkti hlýtur fólk bara að þurfa að taka ábyrgð á eyðslu sinni.

Það herrans ár 2006 gat Lalli Johnson labbað inní hvaða bankaútibú sem var og fengið tugi milljóna í lán…. trúlega var meira segja búið að hringja og bjóða honum það löngu áður en það hvarflaði að honum að hann vantaði tuga milljóna lán….. hvað er fólk búið að drulla langt uppá bak þegar það lenti í vanskilum með 3 milljónir árið 2006….??? Er maður ekki bara komin með skítakleprana í hnakkann???

……og get ég borgað hærri skatta til að bjarga þessu liði…ehhh já

….. vil ég borga hærri skatta til að bjarga þessu liði ….. ehhh NEI!!!

Í guðana bænum fjölmiðlafólk(sem les pottþétt allt þetta víðfræga blogg) farið að koma með raunveruleg dæmi um fólk sem hefur raunverulega farið illa út úr kreppunni og forsendu-hruni lána sem aðeins annar aðilinn í sambandi lántaka-lánadrottins þarf að taka á sig……..
Hættiði að draga fram þessa kúkaklepra sem löngu löngu voru komnir með allt niðrum sig áður en kreppan skall á og eru meira ástæða kreppunnar en fórnarlömb!!

Málið er að á Íslandi eru margir þeir sem eru yngri en svona 35 haldnir þeirri firringu að halda að við eigum RÉTT á hlutunum, frekar heldur en að spyrja sig hvort við höfum EFNI á hlutunum….. Ég spyr …..hefur stór hluti mannkyns þá ekki RÉTT á því að BORÐA???

-S-
(Svala van der woodsen )
xoxo

Comments Ein athugasemd »

NÝJAR MYNDIR OG MÁLIÐ ER DAUTT!

Comments Engar athugasemdir »

Shit verður maður SVONA leiðinlegur við það að verða foreldri…. þökk sé athugasemd hér a síðunni frá honum Villhjálmi þá kikkaði ég á þetta blogg mitt frá árinu 2005……. Þá var sko greinilega bullandi góðæri og þá ekki bara peningalegt heldur andlegt líka :o)

Verð að viðurkenna að ég var nokkuð hnyttin þá…. eitthvað annað en færslurnar nú….” frekar mikið hor og hósti, eyrnabólga, borðuðum hjá mömmu og nýjar myndir”……. KOMMON þetta getur ekki verið hressandi fyrir nokkurn einasta mann að lesa!!! Ég meina þó að strákrnir séu sætir(aðalega þá Baldur) þá eru þeir ekki svona sætir að fólk nenni að lesa þessa skelfingu!!!

Nú er bara að bæta sig…. finna aftur þjóðfélagspúslinn ja þjóðfélagA púlsinn….. ég spáði því til dæmis í einni fréttinni minni frá 2005 að Brad og Angie myndu byrja saman..HÁLFU ÁRI ÁÐUR EN ÞAU BYRJUÐU SAMAN… true story!!!

Þetta var allt sem ég vildi segja í kvöld held ég… engar myndir( þær koma á morgun) ekkert hor( nóg samt af ælu úr þeim minnsta… )

Ekkert starrahreiður heldur, frekar en síðustu 3 ár… starrar gleyma víst engu þannig að þeir komu aldrei aftur sem er BARA gott…. HATA allt sem er ósýnilegt og skríður á manni…. vorkenni strákunum þegar þeir fá lús.. það mun fara illa!!!

GO LAKERS!!!
-S-

Comments 3 athugasemdir »

Já það var sko margt um að vera hjá litlu fjölskyldunni um páskana og í tilefni af því tókum við fullt fullt af myndum.

Við byrjuðum á því að fara í mat á Lyngheiðina en fórum svo í bústaðinn okkar og vorum þar í nokkra daga.
Afi og amma dekruðu við strákana sína og okkur og það kom fullt af góðum gestum.
Við skruppum á veiðisafnið á Stokkseyri sem er alveg svakalega flott og við mælum hiklaust með. Svo fórum við í humarsúpu í Rauða Húsinu eitt hádegið og svo með Markúsi, Karen, Hrafnhildi og Hildi mágkonu um kvöldið á Fjöruborðið…. humardagur og flottræfilsháttur það ;o)
Á leiðinni í bæinn fórum við svo í sveitina okkar og kíktum í fjárhúsið, Breki prófaði að fara í byssuleik í fyrsta sinn og sýndi skemmtilega takta haha
Annan páskadag vorum við í bænum og byrjuðum daginn í sundi á Völlunum þar sem mamman stalst til að taka nokkrar myndir af prinsinum, það má víst ekki taka myndir í íslenskum sundlaugum, spes regla!!Síðan lá leiðin í gönguferð um Laugardalinn, þar sem við fengum okkur að sjálfsögðu pylsu við sundlaugina, kíktum í páskaegg til afa og ömmu í Álftamýri og heimsóttum svo Imbu frænku á Hrafnistu.

Sem sagt frábær páskahelgi og myndirnar eru á myndasíðunni :O)

Minni að lokum alla á að kjósa á laugardaginn og fara svo og hvetja stelpurnar okkar áfram þegar þær mæta Hollendingum í Kórnum klukkan 4 :o)
XOXO
-S-

Comments 3 athugasemdir »