Tvö ný albúm á myndasíðunni:
JANÚAR 2010
FEBRÚAR & MARS 2010
Svakalegt hvað þessir drengir okkar stækka hratt eins og sjá má!!!
Nú er komið sumarstuð í okkur skemmtilegir tímar framundan hjá fjölskyldunni :o)
Sumarkveðjur af Brautinni :o)
Safn fyrir flokkinn “Almennt blaður”Almennt blaður Tvö ný albúm á myndasíðunni: Svakalegt hvað þessir drengir okkar stækka hratt eins og sjá má!!! Sumarkveðjur af Brautinni :o)
ág.
10
2009
3 NÝ ALBÚM Á MYNDASÍÐUNNI :O)Höfundur: Svala flokkað undir: Almennt blaður, Breki, ÓttarJá dugnaður hér á bæ :o) Sumarfrí búið og á morgun tekur alvara lífsins við. Breki hættur með bleyju. Tvöfalt afmæli á næsta leiti. Finnland framundan :o) KREPPAN KREPPAN KREPPAN Hmmm vorkenndi einhver manninum í Íslandi í dag í gærkvöldi??? Það herrans ár 2006 gat Lalli Johnson labbað inní hvaða bankaútibú sem var og fengið tugi milljóna í lán…. trúlega var meira segja búið að hringja og bjóða honum það löngu áður en það hvarflaði að honum að hann vantaði tuga milljóna lán….. hvað er fólk búið að drulla langt uppá bak þegar það lenti í vanskilum með 3 milljónir árið 2006….??? Er maður ekki bara komin með skítakleprana í hnakkann??? ……og get ég borgað hærri skatta til að bjarga þessu liði…ehhh já ….. vil ég borga hærri skatta til að bjarga þessu liði ….. ehhh NEI!!! Í guðana bænum fjölmiðlafólk(sem les pottþétt allt þetta víðfræga blogg) farið að koma með raunveruleg dæmi um fólk sem hefur raunverulega farið illa út úr kreppunni og forsendu-hruni lána sem aðeins annar aðilinn í sambandi lántaka-lánadrottins þarf að taka á sig…….. Málið er að á Íslandi eru margir þeir sem eru yngri en svona 35 haldnir þeirri firringu að halda að við eigum RÉTT á hlutunum, frekar heldur en að spyrja sig hvort við höfum EFNI á hlutunum….. Ég spyr …..hefur stór hluti mannkyns þá ekki RÉTT á því að BORÐA??? -S- Shit verður maður SVONA leiðinlegur við það að verða foreldri…. þökk sé athugasemd hér a síðunni frá honum Villhjálmi þá kikkaði ég á þetta blogg mitt frá árinu 2005……. Þá var sko greinilega bullandi góðæri og þá ekki bara peningalegt heldur andlegt líka :o) Verð að viðurkenna að ég var nokkuð hnyttin þá…. eitthvað annað en færslurnar nú….” frekar mikið hor og hósti, eyrnabólga, borðuðum hjá mömmu og nýjar myndir”……. KOMMON þetta getur ekki verið hressandi fyrir nokkurn einasta mann að lesa!!! Ég meina þó að strákrnir séu sætir(aðalega þá Baldur) þá eru þeir ekki svona sætir að fólk nenni að lesa þessa skelfingu!!! Þetta var allt sem ég vildi segja í kvöld held ég… engar myndir( þær koma á morgun) ekkert hor( nóg samt af ælu úr þeim minnsta… ) Ekkert starrahreiður heldur, frekar en síðustu 3 ár… starrar gleyma víst engu þannig að þeir komu aldrei aftur sem er BARA gott…. HATA allt sem er ósýnilegt og skríður á manni…. vorkenni strákunum þegar þeir fá lús.. það mun fara illa!!! GO LAKERS!!! Já það var sko margt um að vera hjá litlu fjölskyldunni um páskana og í tilefni af því tókum við fullt fullt af myndum. Við byrjuðum á því að fara í mat á Lyngheiðina en fórum svo í bústaðinn okkar og vorum þar í nokkra daga. Sem sagt frábær páskahelgi og myndirnar eru á myndasíðunni :O) Minni að lokum alla á að kjósa á laugardaginn og fara svo og hvetja stelpurnar okkar áfram þegar þær mæta Hollendingum í Kórnum klukkan 4 :o) Já marsmánuður hefur eins og flestir aðrir mánuðir alveg flogið frá okkur en við höfum nú samt brallað ýmislegt skemmtilegt með fjölskyldu og vinum. Mánuðurinn byrjaði á því að mamman stakk af með kvennalandsliðinu í æfingaferð til Algarve í 10 daga og skildi kallana sína 3 eftir heima. Ferðin var afbragðs skemmtileg og þrátt fyrir að maður haldi stundum að maður sé ómissandi er það víst fjarri lagi… kannski helst þvottavélin sem var farin að sakna mín ;o) Strákarnir stóðu sig eins og hetjur og voru mun þægari þegar ég kom til baka heldur en þegar ég fór! Síðan heim kom hef ég notið þess í botn að vera með strákunum mínum. Svo byrjaði ég að vinna fyrir rúmum tveimur vikum hálfan daginn og finnst það alveg frábært Óttar byrjaði hjá Ingu&Siggu sínum sem voru náttúrulega dagmömmur Breka líka. Óttari finnst þær alveg fyrirtak en er náttúrulega alveg eins og Svampur Sveinsson og sogar í sig allar mögulegar og ómögulegar bakteríur og vírusa. Núna er hann með hor og hósta og útbrot til dæmis ;o) Nú svo hafa Markús, Karen og Hrafnhildur komið í mat í mánuðinum og spilað við okkur wii Svo eignuðust Haukur og Harpa litla ofur sæta dóttur á dögunum sem að er ansi lík Kristínu Maríu systur sinni og óskum við þeim til hamingju með monsuna. það bíða að sjálfsögðu fullt af myndum á myndasíðunni frá mánuðinum. Ciao tutti xoxo Þá er fjölskyldan komin úr sólinni og hitanum í Orlando í hressandi raunveruleikann sem tók strax fagnandi á móti okkur í Keflavík á miðvikudagsmorguninn hahaha Samt alltaf svo yndislegt að koma heim í íbúðina sína þó hún sé álíka stór og svefnherbergið okkar plús baðherbergið og fataherbergið úti :o) Ferðin var einu orði sagt STÓRKOSTLEG og ég veit bara ekki hvernig við getum þakkað tengdaforeldrum mínum annað eins svakalegt dekur!!! Húsið sem við vorum í var nú frekar höll en hús og svo vorum við einstaklega heppin með veður og í fyrri vikunni féllu hitamet þar sem hitinn var að fara uppí 30 stig sem er hátt á þessum árstíma. Við notfærðum okkur það og busluðum í lauginni og borðuðum dýrindis amerískar kræsingar a-la- tengdó undir berum himni, ÞVÍLÍK SÆLA :o) Strákarnir fýluðu sig alveg í botn í hitanum enda finnst þeim nú ekki leiðinlegt að vera sem minnst klæddir. Breki var orðinn svakalega klár í sundinu og gjörsamlega laus við hræðslu, hann fór í dýragarðinn sem var algjör upplifun enda dýraóður og svo fékk hann að keyra golfbíl hjá afa og ömmu þegar hann tók nokkrar holur á vellinum með þeim!!! Óttar spriklaði lítið klæddur alla daga og fór að velta sér yfir á magann þó hann sé svo sem ekkert að ofnota það neitt ;o) enda rólegur í tíðinni. Hann var látinn smakka nokkrar gerðir af mat með mis góðum árangri, gulrótarmaukið klárlega best! Svo nutu drengirnir náttúrulega góðs af góða verðinu á dótinu í ameríku sem er náttúrulega bara djók, stór trukkur með 15 bílum í á 5 dollara…… sæll eigum við að ræða það eitthvað??? Breki fékk fullt af Tomma togvagnsdóti, bílum og dýrum. Við Baldur eyddum slatta af flugpunktum á Amazon enda trúlega ekki mikið um utanlandsferðir í kreppunni framundan og sorglegt að láta punktana fara í súginn. Keyptum okkur Wii tölvu, video cameru og ferða DVD, algjör snilld að geta notað punktana svona!!! Svo var náttúrulega shoppað doltið af fötum á familíuna, sólað sig, golfað og síðast en ekki síst borðaður guðdómlegur matur!!!! Ég náttúrulega elska alveg TV ið í Ameríkunni og tók svona nett maraþon sem mikið var helgið að….. þá er ég að tala um t.d. The Real Houswives of New York maraþon HAHAHA Svakalegt magn af myndum á síðunni okkar enda mamman mjög myndavélaglöð :o) Ameríkuknús Óttar skellti sér í 5 mánaða skoðun hjá henni Kristínu sinni í vikunni og nú er minn bara að verða HERRA hlunkur :o) 6,5 kg og 65 cm. Góðar fréttir hjá litlu bauninni okkar sem var nánast ósýnilegur þegar hann fæddist. Mikið að gerast líka í þroskanum dag frá degi núna hjá Óttari. Honum gengur betur að sitja og nær næstum að snúa sér á magann, togar í tærnar sínar og hlær endalaust, prumpar reyndar líka endalaust enda oft kallaður prumpudýrið :o). Hann er farinn að fá pela sem honum líkar mjög vel við og nennir eiginlega ekki þessu brjóstastandi mikið lengur. Hins vegar er honum alveg mein illa við allt matarkyns…. grautur og mauk eru klárlega verkfæri djöfulsins…… Þetta þýðir að næturnar eru nokkuð sundurslitnar í mjólkurþjónustu hjá móðurinni :S Breki er að ganga í gegnum doldið terrible two tímabil núna, verður ákaflega reiður þegar hann fær ekki snakk í morgunverð og að horfa á öll sjónvörpin á heimilinu samtímis svo eitthvað sé nefnt. Hann er samt alltaf jafn ljúfur og yndislegur inn við beinið og svei mér þá ef að orðunum er ekki svoldið að fjölga hjá honum ;o) Ég er alla vega búin að gera mér grein fyrir því að það er örugglega ógeðslega erfitt að vera 1-3 ára gamall. Líkaminn oft að stríða manni, tennur, eilíf veikindi útaf þroska ónæmiskerfis, meltingin ekki alltaf í lagi og maður skilur ekki af hverju maður má ekki hlutina að ég tali nú ekki um að geta ekki tjáð sig!!! Þetta hlýtur að vera agalega erfitt og þess vegna fæ ég alltaf svoo mikið samviskubit þegar ég þarf að vera “vond” og ala upp ;o) Mér verður vonandi þakkað síðar hahaha Jæja þá eru komnar restin af JANÚAR-MYNDUNUM í albúmið. Fullt af flottum strákamyndum, matarboðumsem við erum búin að vera dugleg að halda og happy hour svo eitthvað sé talið. Knús….
jan.
14
2009
Árið 2009 mál og myndir ;o)Höfundur: Svala flokkað undir: Almennt blaður, StjórnmálaáróðurJá það er ekki bjart ár framundan samkvæmt fréttunum…….. énnnn það þýðir ekkert að hengja haus og detta í þunglyndi, bara lifa og læra. Litla fjölskyldan er búin að hugsa stöðuna út frá núverandi forsendum fram og til baka, á maður að fara af landi brott og læra e-d, ekki borga skuldir sem eru ekki okkur að kenna, komast í burtu frá heimsins heimskustu og hrokafyllstu stjórnmálamönnum…. já það voru fullt af góðum ástæðum til að fara en hins vegar líka svo margar góðar til að vera áfram. Okkur líður alveg óendanlega vel í íbúðinni okkar hérna á Brautinni og okkur finnst svo gott að hafa fjölskyldur okkar og vini innan seilingar til að eyða góðum stundum með. Breki elskar leikskólann sinn og við erum svo ánægð með að vera búin að finna fólk sem við treystum svona vel fyrir strákunum okkar eins og Ingu og Siggu dagmömmum og góða fólkinu á Álftaborg. Við höfum sveitina og Öndverðanesið og Sigló til að fara í fríunum okkar og erum svo þakklát fyrir hvað lífið er skemmtilegt hjá okkur :o) Þannig að niðurstaðan eða Plan A er að vera á Íslandi líka í gegnum súrt og reyna þá kannski að hafa einhver áhrif á það að fólk með heila komist til valda. Ég er að skoða fjar-framhaldsnám í sports rehabilitation frá annað hvort USA eða Canada svo það eru ýmsir möguleikar í stöðunni. Ef allt fer svo á versta veg og við missum hús og vinnu verður að grípa til plans B… t.d. flytja í bílskúr hjá foreldrum og lifa í einni stórri kommúnu til fimmtugs hahahaha Okkar mottó er að njóta lífsins í dag og reyna að vera ekki að velta sér uppúr peningaáhyggjum heldur taka eftir þroska barnanna okkar og rækta vinskap, það er auðvelt að fara í pollíönnuleik þegar maður horfir á fjöldmorð Ísraelsmanna á Gaza…… Það er enginn að drepa börnin okkar þó að bankamenn hafa svikið af okkur ævisparnaðinn til að fjármagna þoturnar sínar og þyrlur… skítt með það. Að lokum þá báðu Geir og Ingibjörg mig að koma skilaboðum til ykkar…. ja Ingibjörg reyndar hótaði mér…. Orðsending til “þjóðarinnar” frá Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu: Í öðru lagi, allt þetta kjaftæði um Gaza, nennið þið að láta okkur í friði með þetta, okkur er alveg sama og höfum bara mikilvægari hnöppum að hneppa en að skipta okkur af einhverjum barnsmorðum… eru þetta hvort sem er ekki allt einhverjir hryðjuverkamenn?? Nýtt albúm á myndasíðunni :o) Good Times :o) |