NÓVEMBER 2009
AÐVENTAN 2009
JÓL&ÁRAMÓT 2009
Safn fyrir flokkinn “Breki”Þá er besti tími ársins genginn í garð og kertin og kósíheitin komin á fullt!!! Stanslaust stuð hér á Brautinni og ekki laust við að maður sé aðeins farin að huga að því hvað er stutt í jólaundirbúning (sem byrjar alltaf MJÖG snemma hér á bæ) !!! Mér finnst voðalega gott að vera komin aftur heim eftir stórkostlega Finnlands- EM-ferð með landsliðinu og er ennþá að rifna úr stolti af stelpunum, þær eru þvílíkir töffarar!!! Stefnan er að eyða næstu vikum og mánuðum í að hitta alla skemmtilegu vini okkar sem er alltof langt síðan við höfum hitt og hefst þá fljótlega matarboða-season hér á Brautinni :o) Ég ætla líka að reyna að vera dugleg að setja inn myndir og fréttir af strákunum fyrir hana Hildi okkar sem er flutt til Kanada og við söknum svo mikið!! Á myndasíðunni eru tvö ný albúm; Afmæli Breka og Óttars 2009 og Ágúst 2009 Verði ykkur að góðu :o)
ág.
10
2009
3 NÝ ALBÚM Á MYNDASÍÐUNNI :O)Höfundur: Svala flokkað undir: Almennt blaður, Breki, ÓttarJá dugnaður hér á bæ :o) Sumarfrí búið og á morgun tekur alvara lífsins við. Breki hættur með bleyju. Tvöfalt afmæli á næsta leiti. Finnland framundan :o) NÝJAR MYNDIR OG MÁLIÐ ER DAUTT! ÓTRÚLEGT EN SATT, ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞESSU!!!!! Á mánudag er brottför hjá fjölskyldunni til sunny Orlando!!!!! Get ekki beðið eftir að komast í sól og vonandi smá hita, golf, góðan mat, walmart, fara með Breka í skemmtigarð/dýragarð, Forever21, fara út að hlaupa á stuttbuxum, sushi, starbucks, Barnes&Noble osfrv osfrv :o) Ég reyni hins vegar að hugsa minna um hvað gerist eftir mánuð…… þá yfirgef ég drengina mína í heila 10 daga, úff ég fæ alveg sting í magann við tilhugsunina. Ekki það að þeir verði ekki í fullkomlega góðum höndum föðurs síns og stórfamilíunnar :o) Ég fer sem sagt í byrjun mars í árlega keppnisferð með kvennalandsliðinu til Algarve. Þetta er alltaf hin besta skemmtun og vinna myrkrana á milli sem á vel við mig, ekki síst til að vera ekki alltaf að hafa áhyggjur af öllu heima ;o) Eins gott að fara að herða litlu dekurdúlluna mína sem hefur fengið allt sem hann vill þegar hann vill :o) Magnað að fæðingarorlofið sé á enda innan skamms…. Ég verð að segja að það er ekkert yndislegra heldur en að vera í fæðingarorlofi með barninu sínu….. Ef það væri “bara” meðganga, fæðing og fæðingarorlof þá gæti ég átt 6 börn leikandi….. það sem kemur á eftir; uppeldi, VEIKINDI og almennar áhyggjur af ungunum það er erfiðara mál!!! Ciao tutti Óttar skellti sér í 5 mánaða skoðun hjá henni Kristínu sinni í vikunni og nú er minn bara að verða HERRA hlunkur :o) 6,5 kg og 65 cm. Góðar fréttir hjá litlu bauninni okkar sem var nánast ósýnilegur þegar hann fæddist. Mikið að gerast líka í þroskanum dag frá degi núna hjá Óttari. Honum gengur betur að sitja og nær næstum að snúa sér á magann, togar í tærnar sínar og hlær endalaust, prumpar reyndar líka endalaust enda oft kallaður prumpudýrið :o). Hann er farinn að fá pela sem honum líkar mjög vel við og nennir eiginlega ekki þessu brjóstastandi mikið lengur. Hins vegar er honum alveg mein illa við allt matarkyns…. grautur og mauk eru klárlega verkfæri djöfulsins…… Þetta þýðir að næturnar eru nokkuð sundurslitnar í mjólkurþjónustu hjá móðurinni :S Breki er að ganga í gegnum doldið terrible two tímabil núna, verður ákaflega reiður þegar hann fær ekki snakk í morgunverð og að horfa á öll sjónvörpin á heimilinu samtímis svo eitthvað sé nefnt. Hann er samt alltaf jafn ljúfur og yndislegur inn við beinið og svei mér þá ef að orðunum er ekki svoldið að fjölga hjá honum ;o) Ég er alla vega búin að gera mér grein fyrir því að það er örugglega ógeðslega erfitt að vera 1-3 ára gamall. Líkaminn oft að stríða manni, tennur, eilíf veikindi útaf þroska ónæmiskerfis, meltingin ekki alltaf í lagi og maður skilur ekki af hverju maður má ekki hlutina að ég tali nú ekki um að geta ekki tjáð sig!!! Þetta hlýtur að vera agalega erfitt og þess vegna fæ ég alltaf svoo mikið samviskubit þegar ég þarf að vera “vond” og ala upp ;o) Mér verður vonandi þakkað síðar hahaha Jæja þá eru komnar restin af JANÚAR-MYNDUNUM í albúmið. Fullt af flottum strákamyndum, matarboðumsem við erum búin að vera dugleg að halda og happy hour svo eitthvað sé talið. Knús…. Var að setja inná myndasvæðið nýtt albúm frá Thanksgiving, afmæli Hildar og svo bara daglegu lífi strákanna okkar. Smellið á myndir hér uppí hægra horninu, ekkert password eða vesen. Enginn stjórnmálaáróður að þessu sinni, stjórnmál eru out. Thanksgiving-boðið hjá Óla og Camillu var alveg frábært um síðustu helgi. Alltaf svo gaman að sitja og skiptast á skoðunum með þessum góða vinahópi okkar :o) Njótið aðventunnar, besti tími ársins :o)
nóv.
19
2008
Ný myndasíða og nýjar myndir…ekki bara 10 heldur 100 :o)Höfundur: Svala flokkað undir: Breki, Stjórnmálaáróður, Óttar
Ástæðuna má kannski rekja til þess að ég hef verið gríðarlega dugleg í gönguferðum, styrktaræfingum og brennslu í rúma viku og er að byrja að sjá árangur erfiðisins og æ fleiri af fötunum mínum eru farin að sjá dagsljósið eftir langa dvöl inní myrkum skáp. Nú kannski er ástæðan allt ferska loftið sem ég hef sankað að mér á allri göngunni hér þvert og endilangt um bæinn… fór meira að segja labbandi yfir í Kópavoginn í síðustu viku og hyggst gera það aftur á morgun!! Kannski er góða skapið vegna þess að ég hef síðustu tvær vikur gert allt sem í mínu valdi stendur til að forða mér og mínum út úr húsi áður en bein útsending frá blaðamannafundum ríkisstjórnarinnar byrjar….. mér finnst svo erfitt að fá kjánahroll þegar ég sé fólk ljúga svona í beinni. Nei ástæða þess að dagurinn í dag var svona skemmtilegur var að það sem ég hef beðið eftir í nokkrar vikur gerðist í dag af miklum krafti….. Mér er búið að líða eins og gísla í haldi mannræninga í nokkurn tíma og ef það er eitthvað sem gíslar bíða eftir, er það að upp komi sundrung meðal mannræningjanna…. og viti menn í dag flugu fýlubomburnar af fullum krafti!!! Það sem uppúr stendur við þetta “bankahrun” ….. jú sú magnaða staðreynd að þetta var engum að kenna…nema náttúrulega George W Bush… jú og Íslenskum almenningi…. aðalega samt verkamönnum og láglaunastéttum sem kunnu sér engan vegin hóf í öllu “góðærinu”. En yfir að allt öðrum og mikilvægari málum. Eins og kannski einhverjir glöggir lesendur hafa rekið augun í hafa orðið breytingar hér á síðunni okkar. Fyrir utan það augljósa sem er útlitsbreytingin þá er myndasíðan að rísa úr rústum og hefur öðlast alveg glænýtt líf. Við erum að vinna í því að flytja gömlu albúmin okkar yfir á nýju síðuna ásamt því að henda inn albúmum frá sl. ári sem aldrei hafa litið dagsins ljós áður… svoldið svona eins og bankaskýrslur til þess að setja þetta í samhengi sem allir skilja Allt sem þið þurfið að gera er að smella hér á myndina til að sjá dýrðina Árangur Kvennalandsliðsins í fótbolta…. hann er frábær!! Obama forseti í USA ……..vonandi veit það á gott fyrir heiminn. ALVEG ÖRUGGT……. Og hér er þetta fallega sem ég mun forða frá landi lyga og græðgi(sorry ég er ekki pollýanna í dag) :
|




















Færslur (RSS)