Já það var sko margt um að vera hjá litlu fjölskyldunni um páskana og í tilefni af því tókum við fullt fullt af myndum.
Við byrjuðum á því að fara í mat á Lyngheiðina en fórum svo í bústaðinn okkar og vorum þar í nokkra daga.
Afi og amma dekruðu við strákana sína og okkur og það kom fullt af góðum gestum.
Við skruppum á veiðisafnið á Stokkseyri sem er alveg svakalega flott og við mælum hiklaust með. Svo fórum við í humarsúpu í Rauða Húsinu eitt hádegið og svo með Markúsi, Karen, Hrafnhildi og Hildi mágkonu um kvöldið á Fjöruborðið…. humardagur og flottræfilsháttur það ;o)
Á leiðinni í bæinn fórum við svo í sveitina okkar og kíktum í fjárhúsið, Breki prófaði að fara í byssuleik í fyrsta sinn og sýndi skemmtilega takta haha
Annan páskadag vorum við í bænum og byrjuðum daginn í sundi á Völlunum þar sem mamman stalst til að taka nokkrar myndir af prinsinum, það má víst ekki taka myndir í íslenskum sundlaugum, spes regla!!Síðan lá leiðin í gönguferð um Laugardalinn, þar sem við fengum okkur að sjálfsögðu pylsu við sundlaugina, kíktum í páskaegg til afa og ömmu í Álftamýri og heimsóttum svo Imbu frænku á Hrafnistu.
Sem sagt frábær páskahelgi og myndirnar eru á myndasíðunni :O)
Minni að lokum alla á að kjósa á laugardaginn og fara svo og hvetja stelpurnar okkar áfram þegar þær mæta Hollendingum í Kórnum klukkan 4 :o)
XOXO
-S-

Færslur (RSS)
Flottar myndir af töffurunum:) Sé að þið eruð búin að þrífa gluggana - takið þið þetta að ykkur (þú & Breki:)!
Gangi þér vel um helgina - var að vonast til þess að við gætum tekið brunch en það bíður bara betri tíma:)
Knús & kossar, Karen
Sætar myndir að venju. Óttar tekur sig einstaklega vel út í Macho bolnum;)
Vonandi sjáumst við annars í afmælinu á sunnudag kl 11!
Ástarkveðjur.
Gleðilega páska og sumar og (vonandi) kosningar
Mikið eru þetta fallegir drengir sem þið eigið og gaman að sjá að það eru fleiri eins og við, nota bara sama mót og búa til kópíur hahahahah.
Vonandi hittumst við með alla karlana fljótlega.
Kveðja,
Kaplaskjólskommarnir.