Þá er besti tími ársins genginn í garð og kertin og kósíheitin komin á fullt!!!

Stanslaust stuð hér á Brautinni og ekki laust við að maður sé aðeins farin að huga að því hvað er stutt í jólaundirbúning (sem byrjar alltaf MJÖG snemma hér á bæ) !!!

Mér finnst voðalega gott að vera komin aftur heim eftir stórkostlega Finnlands- EM-ferð með landsliðinu og er ennþá að rifna úr stolti af stelpunum, þær eru þvílíkir töffarar!!!
KSÍ er líka algjörlega frábært og á endalaust hrós skilið fyrir að dekra við stelpurnar og okkur sem vorum að vinna í kringum liðið alla daga allan daginn!!!

Stefnan er að eyða næstu vikum og mánuðum í að hitta alla skemmtilegu vini okkar sem er alltof langt síðan við höfum hitt og hefst þá fljótlega matarboða-season hér á Brautinni :o)

Ég ætla líka að reyna að vera dugleg að setja inn myndir og fréttir af strákunum fyrir hana Hildi okkar sem er flutt til Kanada og við söknum svo mikið!!

Á myndasíðunni eru tvö ný albúm; Afmæli Breka og Óttars 2009 og Ágúst 2009

Verði ykkur að góðu :o)

2 svör við “NÝJAR MYNDIR :O)”
  1. Hæ skvís og velkomin heim :).. gaman að sjá nýju myndirnar af ykkur… og bumbunni auðvitað, hún tekur sig vel út :). Þurfum að fara að hittast fljótlega, líst mjög vel á Hellisbúann, en held að við þurfum að taka einn hitting áður því það er uppselt langt fram í tímann og við verðum nú að hittast áður. Ég bjalla í þig og við finnum tíma ;)

    Hils,
    Katrín

  2. Hæ sæta :)
    Gott að heyra að EM-ferðin heppnaðist vel.
    Takk fyrir myndirnar, ég treysti á að þú verðir áfram dugleg að setja inn myndir. Hlakka til að hitta á ykkur á Skype, alltof langt síðan ég hef séð sætustu strákana á Íslandi! ;)

    Sakna ykkar meira,
    Hildur

Skilja eftir svar