Já það var sko margt um að vera hjá litlu fjölskyldunni um páskana og í tilefni af því tókum við fullt fullt af myndum.

Við byrjuðum á því að fara í mat á Lyngheiðina en fórum svo í bústaðinn okkar og vorum þar í nokkra daga.
Afi og amma dekruðu við strákana sína og okkur og það kom fullt af góðum gestum.
Við skruppum á veiðisafnið á Stokkseyri sem er alveg svakalega flott og við mælum hiklaust með. Svo fórum við í humarsúpu í Rauða Húsinu eitt hádegið og svo með Markúsi, Karen, Hrafnhildi og Hildi mágkonu um kvöldið á Fjöruborðið…. humardagur og flottræfilsháttur það ;o)
Á leiðinni í bæinn fórum við svo í sveitina okkar og kíktum í fjárhúsið, Breki prófaði að fara í byssuleik í fyrsta sinn og sýndi skemmtilega takta haha
Annan páskadag vorum við í bænum og byrjuðum daginn í sundi á Völlunum þar sem mamman stalst til að taka nokkrar myndir af prinsinum, það má víst ekki taka myndir í íslenskum sundlaugum, spes regla!!Síðan lá leiðin í gönguferð um Laugardalinn, þar sem við fengum okkur að sjálfsögðu pylsu við sundlaugina, kíktum í páskaegg til afa og ömmu í Álftamýri og heimsóttum svo Imbu frænku á Hrafnistu.

Sem sagt frábær páskahelgi og myndirnar eru á myndasíðunni :O)

Minni að lokum alla á að kjósa á laugardaginn og fara svo og hvetja stelpurnar okkar áfram þegar þær mæta Hollendingum í Kórnum klukkan 4 :o)
XOXO
-S-

Comments 3 athugasemdir »

Já marsmánuður hefur eins og flestir aðrir mánuðir alveg flogið frá okkur en við höfum nú samt brallað ýmislegt skemmtilegt með fjölskyldu og vinum.

Mánuðurinn byrjaði á því að mamman stakk af með kvennalandsliðinu í æfingaferð til Algarve í 10 daga og skildi kallana sína 3 eftir heima. Ferðin var afbragðs skemmtileg og þrátt fyrir að maður haldi stundum að maður sé ómissandi er það víst fjarri lagi… kannski helst þvottavélin sem var farin að sakna mín ;o)

Strákarnir stóðu sig eins og hetjur og voru mun þægari þegar ég kom til baka heldur en þegar ég fór!

Síðan heim kom hef ég notið þess í botn að vera með strákunum mínum. Svo byrjaði ég að vinna fyrir rúmum tveimur vikum hálfan daginn og finnst það alveg frábært :D

Óttar byrjaði hjá Ingu&Siggu sínum sem voru náttúrulega dagmömmur Breka líka. Óttari finnst þær alveg fyrirtak en er náttúrulega alveg eins og Svampur Sveinsson og sogar í sig allar mögulegar og ómögulegar bakteríur og vírusa. Núna er hann með hor og hósta og útbrot til dæmis ;o)

Nú svo hafa Markús, Karen og Hrafnhildur komið í mat í mánuðinum og spilað við okkur wii :D
Okkur var boðið í yndislegan brunch hjá Kristínu og Hadda og hittum þar líka Sverri og Þrúði og skiptumst á alls kyns skoðunum og börnin fóru á kostum.
Um síðustu helgi fórum við svo í bústaðinn þar sem við Óttar skelltum okkur á eitt stykki ælupest, smekklegt! Á laugardeginum komu Pétur og Katrín í heimsókn en stöldruðu því miður ekki lengi við og alveg nauðsynlegt að hitta þau betur við fyrsta tækifæri!

Svo eignuðust Haukur og Harpa litla ofur sæta dóttur á dögunum sem að er ansi lík Kristínu Maríu systur sinni og óskum við þeim til hamingju með monsuna.
Já viðburðaríkur mánuður en nú er vorið framundan og það er bara gaman :o)

það bíða að sjálfsögðu fullt af myndum á myndasíðunni frá mánuðinum.

Ciao tutti xoxo

Comments 2 athugasemdir »

Þá er fjölskyldan komin úr sólinni og hitanum í Orlando í hressandi raunveruleikann sem tók strax fagnandi á móti okkur í Keflavík á miðvikudagsmorguninn hahaha

Samt alltaf svo yndislegt að koma heim í íbúðina sína þó hún sé álíka stór og svefnherbergið okkar plús baðherbergið og fataherbergið úti :o)
Við litlu strákarnir erum bara búin að vera heima síðan við komum að taka uppúr töskum og jafna okkur á tímamismun. Breki fer bara á leikskólann eftir helgi þegar hann er kominn á íslenskann tíma aftur ;o)
Óttar er að jafna sig af pest sem hann fékk úti. Lillinn þurfti að kíkja til læknis úti og var þá með byrjandi bólgu í eyrunum sínum og fékk penisillin.

Ferðin var einu orði sagt STÓRKOSTLEG og ég veit bara ekki hvernig við getum þakkað tengdaforeldrum mínum annað eins svakalegt dekur!!!

Húsið sem við vorum í var nú frekar höll en hús og svo vorum við einstaklega heppin með veður og í fyrri vikunni féllu hitamet þar sem hitinn var að fara uppí 30 stig sem er hátt á þessum árstíma. Við notfærðum okkur það og busluðum í lauginni og borðuðum dýrindis amerískar kræsingar a-la- tengdó undir berum himni, ÞVÍLÍK SÆLA :o)

Strákarnir fýluðu sig alveg í botn í hitanum enda finnst þeim nú ekki leiðinlegt að vera sem minnst klæddir. Breki var orðinn svakalega klár í sundinu og gjörsamlega laus við hræðslu, hann fór í dýragarðinn sem var algjör upplifun enda dýraóður og svo fékk hann að keyra golfbíl hjá afa og ömmu þegar hann tók nokkrar holur á vellinum með þeim!!!

Óttar spriklaði lítið klæddur alla daga og fór að velta sér yfir á magann þó hann sé svo sem ekkert að ofnota það neitt ;o) enda rólegur í tíðinni. Hann var látinn smakka nokkrar gerðir af mat með mis góðum árangri, gulrótarmaukið klárlega best!

Svo nutu drengirnir náttúrulega góðs af góða verðinu á dótinu í ameríku sem er náttúrulega bara djók, stór trukkur með 15 bílum í á 5 dollara…… sæll eigum við að ræða það eitthvað??? Breki fékk fullt af Tomma togvagnsdóti, bílum og dýrum.

Við Baldur eyddum slatta af flugpunktum á Amazon enda trúlega ekki mikið um utanlandsferðir í kreppunni framundan og sorglegt að láta punktana fara í súginn. Keyptum okkur Wii tölvu, video cameru og ferða DVD, algjör snilld að geta notað punktana svona!!!

Svo var náttúrulega shoppað doltið af fötum á familíuna, sólað sig, golfað og síðast en ekki síst borðaður guðdómlegur matur!!!! Ég náttúrulega elska alveg TV ið í Ameríkunni og tók svona nett maraþon sem mikið var helgið að….. þá er ég að tala um t.d. The Real Houswives of New York maraþon HAHAHA

Svakalegt magn af myndum á síðunni okkar enda mamman mjög myndavélaglöð :o)

Ameríkuknús

Comments 2 athugasemdir »

ÓTRÚLEGT EN SATT, ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ ÞESSU!!!!!

Á mánudag er brottför hjá fjölskyldunni til sunny Orlando!!!!! Get ekki beðið eftir að komast í sól og vonandi smá hita, golf, góðan mat, walmart, fara með Breka í skemmtigarð/dýragarð, Forever21, fara út að hlaupa á stuttbuxum, sushi, starbucks, Barnes&Noble osfrv osfrv :o)
Ég á yndislegustu tengdaforeldra og ekki “bara” útaf því að þau bjóða okkur í svona geggjaða ferð heldur líka útaf því hvað þau eru skemtilegur félagskapur í svona ferð!!

Ég reyni hins vegar að hugsa minna um hvað gerist eftir mánuð…… þá yfirgef ég drengina mína í heila 10 daga, úff ég fæ alveg sting í magann við tilhugsunina. Ekki það að þeir verði ekki í fullkomlega góðum höndum föðurs síns og stórfamilíunnar :o) Ég fer sem sagt í byrjun mars í árlega keppnisferð með kvennalandsliðinu til Algarve. Þetta er alltaf hin besta skemmtun og vinna myrkrana á milli sem á vel við mig, ekki síst til að vera ekki alltaf að hafa áhyggjur af öllu heima ;o)

Eins gott að fara að herða litlu dekurdúlluna mína sem hefur fengið allt sem hann vill þegar hann vill :o) Magnað að fæðingarorlofið sé á enda innan skamms…. Ég verð að segja að það er ekkert yndislegra heldur en að vera í fæðingarorlofi með barninu sínu….. Ef það væri “bara” meðganga, fæðing og fæðingarorlof þá gæti ég átt 6 börn leikandi….. það sem kemur á eftir; uppeldi, VEIKINDI og almennar áhyggjur af ungunum það er erfiðara mál!!!

Ciao tutti

Comments 5 athugasemdir »

Óttar skellti sér í 5 mánaða skoðun hjá henni Kristínu sinni í vikunni og nú er minn bara að verða HERRA hlunkur :o) 6,5 kg og 65 cm. Góðar fréttir hjá litlu bauninni okkar sem var nánast ósýnilegur þegar hann fæddist.

Mikið að gerast líka í þroskanum dag frá degi núna hjá Óttari. Honum gengur betur að sitja og nær næstum að snúa sér á magann, togar í tærnar sínar og hlær endalaust, prumpar reyndar líka endalaust enda oft kallaður prumpudýrið :o). Hann er farinn að fá pela sem honum líkar mjög vel við og nennir eiginlega ekki þessu brjóstastandi mikið lengur. Hins vegar er honum alveg mein illa við allt matarkyns…. grautur og mauk eru klárlega verkfæri djöfulsins…… Þetta þýðir að næturnar eru nokkuð sundurslitnar í mjólkurþjónustu hjá móðurinni :S

Breki er að ganga í gegnum doldið terrible two tímabil núna, verður ákaflega reiður þegar hann fær ekki snakk í morgunverð og að horfa á öll sjónvörpin á heimilinu samtímis svo eitthvað sé nefnt. Hann er samt alltaf jafn ljúfur og yndislegur inn við beinið og svei mér þá ef að orðunum er ekki svoldið að fjölga hjá honum ;o)
Heilsufarið hefur klárlega verið betra en síðasta vetur en þó alltaf aðeins of stutt í kvefið að okkar mati því þá er svefninn ekki nógu góður og eins vill hann lítið borða þegar hann er með kvef.

Ég er alla vega búin að gera mér grein fyrir því að það er örugglega ógeðslega erfitt að vera 1-3 ára gamall. Líkaminn oft að stríða manni, tennur, eilíf veikindi útaf þroska ónæmiskerfis, meltingin ekki alltaf í lagi og maður skilur ekki af hverju maður má ekki hlutina að ég tali nú ekki um að geta ekki tjáð sig!!! Þetta hlýtur að vera agalega erfitt og þess vegna fæ ég alltaf svoo mikið samviskubit þegar ég þarf að vera “vond” og ala upp ;o) Mér verður vonandi þakkað síðar hahaha

Jæja þá eru komnar restin af JANÚAR-MYNDUNUM í albúmið. Fullt af flottum strákamyndum, matarboðumsem við erum búin að vera dugleg að halda og happy hour svo eitthvað sé talið.

Knús….

Comments Engar athugasemdir »

HVERNIG ER ÞAÐ, ER EINAR K GUÐFINNSSON Á DONORS LISTA??? GAF HANN HEILANN Í SÉR FYRIR EINHVERJUM VIKUM????

GUÐ MINN GÓÐUR, GETUR EKKI PLÍÍÍS EINHVERT LAND YFIRTEKIÐ OKKUR, ÞAÐ ER EKKI HÆGT AÐ LIFA VIÐ SVONA HEIMSKU.

Comments Engar athugasemdir »

Já það er nú eiginlega bara full vinna að fylgjast með fréttunum þessa dagana, stórir hlutir að gerast og kominn tími til að fólk færi að axla ábyrgð. að mínu mati. Þar sem að enginn af gömlu bankastjórum bankanna sem þeir settu á hausinn situr enn þá skil ég persónulega ekki hvað var verið að gera með liðið sem setti landið á hausinn enn að stjórna því, ég tek ofan fyrir Björgvini G loksins gerði einhver eitthvað í sínum málum. Annars tel ég þetta vera fyrst og fremst mótmælendum að þakka.

Hvað svo sem tekur við, hvort við förum úr öskunni í eldinn eða hvort yfir höfuð einhverju er bjargandi þegar þjóð er komin á hausinn…. það veit ég ekki hef ekki prófað þetta áður ;o) Sem vinstri og jafnréttis manneskja vona ég að það sem ég hef talið mín gildi fram til þessa geti komið með einhverjar réttlátar lausnir. Væri samt til í að sjá ný andlit á vinstriforystunni, setja Ögmund, Steingrím og Kolbrúnu á bekkinn svo einhverjir séu taldir, en sjáum hvað setur. Við erum þó alla vega að upplifa söguna, engin helvítis lognmolla :o)

Mér finnst samt alveg hreint yndislegt að heyra sjálfstæðismenn ennþá segja að nú fari allt til fjandans á landinu fyrst að það er að komast á vinstri stjórn….. af því að það er EINMITT ekki allt komið til fjandans…..HVAR MISSTI ÉG ÞRÁÐINN???

Athyglisvert Kastljósið í gær, ekki spurning að fíflið og dóninn hann Helgi Seljan er lang besti fréttamaðurinn þarna og þó víðar væri leitað. Vonandi sér RUV sóma sinn í því að ráða Kompásmenn til sín og halda áfram einhvers konar rannsóknarfrétta mennsku ekki þessi endalausu vitöl við fólk sem engu skilar. Ég fagna því ef á að fara að draga bankamennina okkar fyrrverandi til ábyrgðar, þó ekki væri nema selja nokkrar flugvélar og láta ágóðan renna til mæðrastyrksnefndar.

Ég verð að segja að stjórnmálamenn eru ekki mikils metnir hjá mér þessa dagana. Það er eitt að hafa mismunandi skoðanir en þessar helvítis bakstungur endalaust eru óþolandi. Þorgerður Katrín fær enn og aftur ein af fáum sjálfstæðismönnum prik frá mér fyrir að taka ekki þátt í þessum fíflaskap í sjónvarpinu í gærkvöldi.

Ný ríkisstjórn að líta dagsins ljós en svo er bara að sjá hvort er einhver munur á kúk og skít…….

xoxo gossip girl ;o)

Comments 2 athugasemdir »

Já það er ekki bjart ár framundan samkvæmt fréttunum…….. énnnn það þýðir ekkert að hengja haus og detta í þunglyndi, bara lifa og læra.

Litla fjölskyldan er búin að hugsa stöðuna út frá núverandi forsendum fram og til baka, á maður að fara af landi brott og læra e-d, ekki borga skuldir sem eru ekki okkur að kenna, komast í burtu frá heimsins heimskustu og hrokafyllstu stjórnmálamönnum…. já það voru fullt af góðum ástæðum til að fara en hins vegar líka svo margar góðar til að vera áfram.

Okkur líður alveg óendanlega vel í íbúðinni okkar hérna á Brautinni og okkur finnst svo gott að hafa fjölskyldur okkar og vini innan seilingar til að eyða góðum stundum með. Breki elskar leikskólann sinn og við erum svo ánægð með að vera búin að finna fólk sem við treystum svona vel fyrir strákunum okkar eins og Ingu og Siggu dagmömmum og góða fólkinu á Álftaborg. Við höfum sveitina og Öndverðanesið og Sigló til að fara í fríunum okkar og erum svo þakklát fyrir hvað lífið er skemmtilegt hjá okkur :o)

Þannig að niðurstaðan eða Plan A er að vera á Íslandi líka í gegnum súrt og reyna þá kannski að hafa einhver áhrif á það að fólk með heila komist til valda. Ég er að skoða fjar-framhaldsnám í sports rehabilitation frá annað hvort USA eða Canada svo það eru ýmsir möguleikar í stöðunni.

Ef allt fer svo á versta veg og við missum hús og vinnu verður að grípa til plans B… t.d. flytja í bílskúr hjá foreldrum og lifa í einni stórri kommúnu til fimmtugs hahahaha

Okkar mottó er að njóta lífsins í dag og reyna að vera ekki að velta sér uppúr peningaáhyggjum heldur taka eftir þroska barnanna okkar og rækta vinskap, það er auðvelt að fara í pollíönnuleik þegar maður horfir á fjöldmorð Ísraelsmanna á Gaza…… Það er enginn að drepa börnin okkar þó að bankamenn hafa svikið af okkur ævisparnaðinn til að fjármagna þoturnar sínar og þyrlur… skítt með það.

Að lokum þá báðu Geir og Ingibjörg mig að koma skilaboðum til ykkar…. ja Ingibjörg reyndar hótaði mér….

Orðsending til “þjóðarinnar” frá Geir Haarde og Ingibjörgu Sólrúnu:
Í fyrsta lagi greiin okkar, farið þið nú að koma út úr moldarholunum ykkar og verða ykkur út um einhverjar fréttir frá umheiminum…….. JÖRÐIN ER HNÖTTÓTT hallóóó og hallóóó það er ALÞJÓÐA FJÁRMÁLAKRÍSA Í HEIMINUM…. dísess veit þetta enginn nema við, þetta vesen hérna á Íslandi er sko ekki okkur að kenna!!!

Í öðru lagi, allt þetta kjaftæði um Gaza, nennið þið að láta okkur í friði með þetta, okkur er alveg sama og höfum bara mikilvægari hnöppum að hneppa en að skipta okkur af einhverjum barnsmorðum… eru þetta hvort sem er ekki allt einhverjir hryðjuverkamenn??
Við erum mjög upptekin af því að reyna að redda hrikalegum horfum á social calendarinu okkar. Það er tómt, engin laxveiði, engin ópera á Ítalíu engir fótboltaleikir, engin kokteilboð og það er orðið ansi lítið eftir af Dom Perignon-inu okkar……..kommon people látið okkur í friði það er krííísa!!!

Nýtt albúm á myndasíðunni :o)

Good Times :o)

Comments Engar athugasemdir »

Já þá er 2008 búið og sumir segja sem betur fer!!! Ég lít nú samt ekki á árið 2008 sem slæmt ár því að á því herrans ári var gullmolinn okkar hann Óttar fæddur og því myndi ég sko aldrei kalla þetta annað en gott ár. Hvað varðar þessi blessuðu efnahagsmál voru þau bara e-d sem hlaut að gerast fyrr eða síðar og ég er ein að þeim sem held að þetta verði þegar erfiðleikarnir eru að baki eitt það besta sem gat komið fyrir okkur sem manneskjur…. siðferðið var að verða farið.

Hér fyrir neðan er smá fjölskylduannáll, enginn stjórnmálaáróður…ÓTRÚLEGT!!! Fyrir þá sem ekki nenna að lesa eru fullt af nýjum myndum í jóla og áramóta albúmi á myndasíðunni :o)

SVONA EINHVERN VEGIN VAR ÁRIÐ OKKAR 2008:
Það er kannski táknrænt að árið 2008 byrjaði hjá okkur fjölskyldunni uppi í fjöllunum á Ítalíu en endaði hérna á Brautinni okkar góðu :o)Ég byrjaði árið á óvanalega mikill geðvonsku sem gaf ástæðu til að fjölskuyldan gæti verið að stækka sem svo var staðfest með ápissupriki. Ég ferðaðist svo hingað og þangað um heiminn með kvennalandsliðinu okkar þar sem þær unnu hvern leikinn af öðrum þar til þær tryggðu sér sæti í lokakeppni EM núna á árinu. Á meðan voru Baldur og mini-mi hans í góðu yfirlæti heima og urðu líkari með hverjum deginum.

Í apríl notaði ég vildapunktana mína og fór með mömmu og Ólöfu í yndislega kvennaferð til New York þar sem við þrömmuðum fram og til baka í viku og nutum lífsins. Í byrjun júní byrjaði Breki á Álftaborg og þó að hann saknaði Ingu og Siggu sinna mjög mikið í upphafi fann hann sig fljótt sem leikskólastrákur og er nú hrókur alls fagnaðar.
Sumarfríinu okkar eyddum við ýmist í Öndverðanesinu í golfi og sólbaði eða hérna í bænum í Laugardalnum og á pallinum og í pottinum á Lyngheiðinni enda ekki erfitt að láta sér líða vel þegar hitinn er yfir 20°dag eftir dag!

26. ágúst fannst svo Óttari tímabært að mæta á svæðið 2 vikum fyrir komudag enda verkfall ljósmæðra framundan og gott að drífa í þessu. Hann var ekki lengi að ryðja sér í heiminn(sem betur fer) en þar sem móðurinni var talin trú um að sleppa mænudeyfingunni var þetta allt annað en þægilegt!! Hann var ekki nema 10 merkur þessi hnoðri og heppilega lítill haus að mati móðurinnar :o)
Allt gekk svo vel að við vorum komin heim nokkrum klukkutímum síðar og bjuggum okkur undir afbrýðisemi stóra bróður. Breki hins vegar tók vel á móti Óttari bróður sínum og hefur alveg frá fyrsta degi passað vel uppá hann og verið rosalega góður.

Breki er ekki enn farinn að tala mikið en hreyfiþroski hans er með ólíkindum og hoppar hann allra sinna ferða nánast. Hann hoppaði til dæmis alla leið hingað uppá 4. hæð nú á dögunum, tröppu fyrir tröppu..sumir eiga nú bara erfitt með að labba þessar tröppur upp ;o)!!

Eftir að Óttar kom í heiminn tóku við yndislegar vikur í rólegheitum hérna á Brautinni þar sem vorum að kynnast nýja fjölskyldumeðlimnum sem var alveg rólegur með afbrigðum og þreyttur með eindæmum :o) Við Baldur biðum á hverjum degi eftir magakveisunni sem aldrei kom sem betur fer!!

Nú svo bað Geir guð að blessa okkur og þá urðu dagarnir skrítnir, við reyndum samt að passa okkur á að njóta fyrstu mánaðann með gullmolanum okkar og týna okkur ekki í áhyggjum. Mér er mjög minnistæð happy hour sem við héldum hérna á Brautinni helgina eftir að allt hrundi og við sátum hérna vinahópurinn, flestir í algjörri óvissu um hvort þeir hefðu vinnu eftir helgina. En svona er nú einmitt það góða við vinskap að maður deilir saman góðum stundum og svo er líka gott að standa saman þegar erfiðir tímar eru :o)

Fæðingarferð Óttars með tengdó til Florida sem áætluð hafði verið í nóvember var frestað útaf ástandinu og við fórum bara í staðin að skreyta og gera kósí hjá okkur fyrir jólin sem eru búin að vera yndisleg. Mikið af pökkum, mikið af góðum mat og góðar stundir í faðmi fjölskyldunnar. Smá lasleiki í strákunum en þó sem betur fer ekki neitt alvarlegt. Ég er hins vegar voðalega viðkvæm fyrir veikindum þeirra og held að lungnabólgan í Breka 2007 hafi hrætt mig alveg svakalega…got að Baldur er þessi rólegi yfirvegaði á svoleiðis stundum þegar móðureðlið er að ganga að mér dauðri ;o)

Kæru vinir og fjölskylda, takk fyrir alla góðu stundirnar á árinu og gjafir og jólakort :o)
Ástarkveðjur af Brautinni
xoxo
-S-

Comments 2 athugasemdir »

Hér á Brautinni gengur lífið bara sinn vanagang og við reynum að hafa það eins kósí og hægt er. Okkar uppskrift af kósíheitum á aðventu er að kúra sem mest heima og borða gotterí og fá vini og fjölskyldu í heimsókn. Við gerum okkur far um að reyna að forðast búðir eftir fremsta megni og þá aðalega Smáralind og Kringluna :o)

Að vanda er ég á síðustu stundu með allt og hvorki byrjuð að versla jólagjafir nér skrifa jólakort og líður bara nokkuð vel með þetta allt saman :o)

Brekinn okkar er lasinn heima núna en hann er samt allur að braggast og Óttari finnst mjög gaman að hafa bróður sinn svona mikið hjá sér enda er hann skemmtilegastur í heimi!!!

Í síðustu viku fórum við á jólaball Álftaborgar sem var mjög gaman þó að jólasveinninn væri svoldið scary…. svo daginn eftir fórum við með ömmu og afa í Kópavogi að höggva jólatré uppi í Heiðmörk. Þar var annað kvikindi og sá ekkert mikið skemmtilegri að Breka mati :o).

Óttar er að verða latur að liggja útaf og leika sér og tekur núna helst ekki annað í mál en að fá að sitja uppi og fylgjast með lífinu og tilverunni….stundum sofnar maður reyndar við þá iðju….

Sem sagt bara gaman hér á bæ eins og sjá má á myndunum í nýja albúminu:aðventumyndir 2008.

Caion tutti frutti

Comments 2 athugasemdir »